Auglýsing

Leikur dagsins

Myndir af keiluferðinni

13. nóvember 2008 klukkan 19:15
Myndir af keiluferðinni eru komnar inn á myspaceið hjá Gauta

www.myspace.com/gautzz

Annars viljum við bara þakka flestum fyrir að hafa hagað sér þokkalega í ferðinni ;)

kv. Vistarráðið

Keiluferð

04. nóvember 2008 klukkan 00:21
Miðvikudaginn 12. nóvember er stefnt á að fara í keiluferð í Keiluhöllina í Öskjuhlíðinni. 1000 krónur á mann, fyrir disco keilu og pizzu. Við sameinumst bara í bíla og borgum bensín eftir samkomulagi. Mæting fyrir kl 21:00 í keiluhöllina. Við fáum að spila í 55 mínútur.
Þeir sem vilja koma með skrái sig á listann sem hangir niðri á töflu, fyrir miðvikudag. Það þarf að vera búið að greiða 1000 kr til okkar fyrir föstudaginn 7. nóv.  helst til Höska í 214, annars bara til einhverrs af okkur.

kv. Elsa, Gauti, Höski og Álfheiður

KEILUFERÐIN

28. október 2008 klukkan 19:45


Verðum því miður að fresta keiluferðinni...
hvernig lýst ykkur á miðvikudaginn 12. nóvember (eftir tvær vikur sem sagt)??

Ætla að hringja í keiluhöllina á morgun og panta og svona... þannig fylgist með ;)

Elsa

Leynivinalisti kominn upp..vúhú:D

16. október 2008 klukkan 23:14
Athygli er vakin á því að listi yfir leynivinina er kominn upp:) Afsakið töfina:D

Minnum svo alla á að taka þátt í áhugakönnun sem hangir niðri á töflu, en hún tengist fyrirhugaðri keiluferð miðvikudaginn 29. október.... nánari upplýsinga er að vænta síðar:)

kveðja
Vistarráð

fíflagangur í kvöld:)

14. október 2008 klukkan 16:29

Góðan dag kæru sambýlendur

Vil minna á fíflaganginn sem við ætlum að vera með í kvöld. Elsa leikjameistari er að plana eitthvað stórfenglegt og við hvetjum alla til að mæta! Einnig verður væntanlega upplýst hver er leynivinur hvers, ef ekki þá mun sá listi koma hérna á netið í kvöld eða á morgun. Þannig að um að gera að drífa sig að gera e-ð fyrir leynivininn sinn:)

En þessi fíflagangur mun aldrei taka langan tíma, þetta verður bara stutt, kjánalegt, fyndið og gaman þannig að...:) Engar áhyggjur! Ef þið eruð að læra mikið í dag, endilega kíkið samt út í skóla, þið hafið gott af 30-60 mín pásu frá lærdómnum:)

hefst s.s. Í FVA kl 20, þetta verður geggjað:)

með kveðju fyrir hönd vistarráðs
Álfheiður SHe

P.S. ég verð því miður fjarverandi af óviðráðanlegum orsökum svo ekki vera vond við mig yfir að hafa ekki mætt:) okei?:) okei

ATH ATH ATH ATH

08. október 2008 klukkan 16:10
Athugið..fundurinn í kvöld verður á sal skólans kl 20:00....hann verður ekkert langur elskurnar, endilega látið sjá ykkur:)

kveðja
Vistarráð

FUNDUR Á MORGUN!!!

07. október 2008 klukkan 22:01
Góðir hálsar

vVð viljum minna alla vistarbúa á að mæta á fundinn á morgun! Hann verður haldinn kl 20:00 í FVA á morgun, miðvikudagskvöldið 8.október. Nánari staðsetning verður auglýst síðar. Skyldumæting er á þennan fund, btw..það verður nafnakall!, þar sem við munum aðeins kynna okkur, minna á ákveðna hluti og fá hugmyndir og svona frá ykkur. Einnig ætlum við að kynna spennandi og kjánalegan viðburð sem mun fara fram í næstu viku...úúúúú:D fylgist spennt með því!;)



Innilegustu kveðjur
fyrir hönd vistarráðs
Álfheiður SHe

Gleðilegt nýtt skólaár:)

06. október 2008 klukkan 20:08
Kæru vistarmeðlimir og aðrir velunnarar

Ég vil byrja á því að bjóða ykkur, fyrir hönd vistarráðs, velkomin aftur í skólan eftir sumarið og á vistina. Ég veit það er erfitt að hemja gleðina en reynið nú samt:)

Annars vildi ég bara drita inn lítilli færslu til þess að láta ykkur vita hver við erum, fyrir þau sem þekkja okkur ekki. Vistarráðið í ár skipa:

Sambýlismennirnir Höskuldur og (Ketill) Gauti í herbergi 214 og nágrannarnir Elsa, herbergi 202, og Álfheiður í herbergi 205.

Stefnan er sett á að fara á fund með Herði skólastjóra og Huldunni okkar í hádeginu á morgun og í framhaldinu af því munum við setjast niður og ,,breinstorma". Allar hugmyndir eru gífurlega vel þegnar og þurfum við að sjálfsögðu ykkar aðstoð og ykkar þátttöku til þess að gera þetta skólaár sem bærilegast:)

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, en vonandi bætist fleira við á þessa síðu á næstu dögum...stay tuned:)

fyrir hönd vistarráðs,
Álfheiður SHe

Vistarparý

01. apríl 2008 klukkan 10:51
Nú er komið að vistarpartýinu góða...


Fyrir þá sem ekki eru á vistinni hljóðar plaggatið eitthvað á þennan veg:

Hið árlega vistarpartý verður haldið í félagsheimilinu Brún, 5. apríl og hefst klukkan 19:00.
  • gangakeppni
  • sundlaugarpartý
  • kvöldsnarl
  • stuð langt fram á nótt

ATH
  • Einungis fyrir vistarbúa, fyrrum vistarbúa og maka
  • Dyraverðir á svæðinu Svalur
  • Allir að þrífa daginn eftir - EKKERT KJAFTÆÐI
  • Hver þrífur upp sína ælu
  • og svo allir og borga Sirrý 1000 kr fyrir miðvikudag, því fyrr því betra!

Ef þið hafið einhverjar spurningar, spurjið bara einhvern í vistarráðinu eða hér á síðunni og við skulum reyna að svara einhverju af viti
Ullandi


Sæl að sinni

Fyrir hönd vistarráðs
Sirrý

VISTARPARTÝ:)

07. febrúar 2008 klukkan 00:01

Ætlum bara að láta ykkur vita að við erum búin að panta félagsheimilið Brún í Borgarfirði laugardaginn þann 5. apríl!!! svo vinsamlegast takið það kvöld frá,jess thank you!
Þetta er það sem við köllum Árshátíð vistarbúa(mest svo við fáum að leigja húsið:D)og þess vegna hvet ég sem flesta að mæta:)
Sundlaug er á staðnum og það verður grillað og eitthvað...Trúi ekki öðru en að þetta verði enn betri en síðasta partý,,,já viiiitjiði til;)
1000 kall á mann!
Skráningarblað kemur upp á næstunni:)
ef þið eruð fyrrverandi vistarbúar,,,,hafið þá bara samband við mig(Gyðu),eða Sirrý eða Aron eeeða Ástu.

skál:)

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Gangakeppni í vistarpartý